Aflýsa hefur þurft tveimur flugferðum WOW air til og frá Miami vegna fellibylsins Irmu. Um er að ræða flug sem áttu að fara frá Keflavíkurflugvelli á föstudag og frá Miami á laugardag. Ekki er búið að taka ákvörðun um aðrar flugferðir en fylgst verður vel með stöðu mála í Miami og farþegar upplýstir jafn óðum með tölvupósti, smáskilaboðum og á heimasíðu WOW air.

Farþegum hefur verið gefinn kostur á að hætta við flug og fá fulla endurgreiðslu, breyta flugi sínu á aðrar dagsetningar eða velja flug frá öðrum brottfararstöðum WOW air á austurströnd Bandaríkjanna, Washington D.C., Boston eða New York.

Þá er þeim farþegum sem eiga flug heim frá Miami til Íslands í kvöld bent á að mæta sérstaklega snemma á flugvöllinn til þess að forðast örtröð og verður innritunarborðið opnað fyrr eða um kl 12 að staðartíma.