Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid eru nú í formlegri heimsókn í Nuuk, höfuðborg Grænlands, í boði Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands. Í fréttatilkynningu frá Skrifstofur forseta Íslands hitta þau í dag grænlenska embættis- og stjórnmálamenn og fulltrúar fyrirtækja, sem átt hafa í samstarfi við íslensk fyrirtæki, auk Íslendinga sem búsettir eru í Nuuk.

„Á morgun þriðjudag mun forseti eiga fund með forsætisráð¬herr¬anum. Þá munu forsetahjón heimsækja Háskóla Grænlands og ræða þar við starfsmenn og nemendur og halda í þjóðþingið Inatsisartut þar sem forseti á fund með Vivian Motzfeldt þingforseta. Einnig mun forseti eiga fund með landstjóra Dana, Mikaela Engell, og sitja forsetahjónin svo hátíðarkvöldverð í boði forsætisráðherrans í Hans Egede húsinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Skrifstofur forseta Íslands.

„Áður en heimsókninni lýkur á miðvikudaginn heimsækja forseta¬hjónin Miðstöð loftslagsrannsókna í Nuuk, Kofoeds skólann og Royal Arctic Line sjóflutningafyrirtækið og eiga einnig fund með borgarstjóranum í Nuuk, Charlotte Ludvigsen. Loks má nefna að forsetafrúin mun eiga fundi með Sara Olsvig, fv. ráðherra sem nú er verkefnisstjóri UNICEF, og með Aviâja Egede Lynge, umboðsmanni barna á Grænlandi.“