Thomas Klühr, forstjóri flugfélagsins Swiss International, dótturfélags Lufthansa, mun láta af störfum um næstu áramót. Þá mun hann jafnframt láta af störfum sem stjórnarformaður Edelweiss Air, sem einnig er dótturfélag Lufthansa. Reuters greinir frá.

Enn á eftir að ganga frá ráðningu eftirmanns hans en stjórn flugfélagsins segir í yfirlýsingu að tilkynnt verði um eftirmann Klühr á síðasta ársfjórðung yfirstandandi árs.