Fossar markaðir hafa undirritað samstarfssamning við breska fjárfestingaráðgjafarfyrirtækið Redington. Samstarfið felur í sér að starfsfólk fagfjárfestaþjónustu Fossa og viðskiptavinir félagsins hafa nú aðgang að greiningum Redington á eignastýringarhúsum á heimsvísu. Þetta kemur fram í tilkynningu um málið.

Hjá Redington er sagt starfa sérhæft og reynslumikið rannsóknateymi skipað sérfræðingum í öllum helstu eignaflokkum. Sérfræðikunnátta teymisins nái yfir 45 eignaflokka um allan heim og byggi á sérsniðinni nálgun þar sem greind séu 5-10% þeirra eignastýringarhúsa sem hafi náð bestum árangri í hverjum eignaflokki fyrir sig.

Þá er samstarfið sagt færa Fossum mörkuðum og viðskiptavinum félagsins aðgang að upplýsingum og gögnum sem gefi gott yfirlit yfir þá fjárfestingarkosti og sjóði sem stýrt sé af farsælustu fjárfestingastjórum í öllum helstu eignaflokkum. Þessar upplýsingar verði notaðar til grundvallar markvissrar ráðgjafar til íslenskra fjárfesta að teknu tilliti til markmiða þeirra og þarfa.

Einstakt tækifæri
David Witzer, framkvæmdastjóri fagfjárfestaþjónustu Fossa markaða, er að sögn ánægður með samstarfið við Redington og telur rannsóknargetu Redington án hliðstæðu. „Um er að ræða spennandi samstarf sem gerir okkur kleift að bjóða íslenskum stofnanafjárfestum sem vilja auka erlenda eignadreifingu einstakt tækifæri á sviði fjárfestinga.“

Nick Samuels, yfirmaður fjárfestingarannsókna hjá Redington, segir: „Við hlökkum til að vinna að því markmiði með Fossum mörkuðum að auka gæði fjárfestinga íslenskra fjárfesta og styðja þá í uppbyggingu eignasafna sinna með eignadreifingu um allan heim. Áhersla Fossa markaða á að tryggja viðskiptavinum sínum hámarksárangur í fjárfestingum, gerir fyrirtækið að ákjósanlegum samstarfsaðila fyrir okkur, á sama tíma og við byggjum upp starfsemi okkar á þessum nýja markaði.“