Rakel Eva Sævarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður sjálfbærni- og samfélagsábyrgðar hjá Play. Hún mun móta og innleiða sjálfbærnistefnu félagsins ásamt því að skilgreina sjálfbærnitengd markmið þess sem snúa að umhverfismálum, félagslegum þáttum, stjórnarháttum og öðrum rekstrarlegum þáttum, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Rakel Eva kemur til flugfélagsins frá Marel þar sem hún starfaði sem sérfræðingur í sjálfbærni innan fiskiðnaðar. Þar áður starfaði hún sem ráðgjafi hjá Deloitte þar sem hún sérhæfði sig í sjálfbærnitengdri ráðgjöf og tók þátt í að byggja upp nýja þjónustulínu á sviði sjálfbærni.

Hún var ein af þremur stofnendum Fortuna Invest, vettvangs á Instagram, með það markmið að auka fjölbreytileika í þátttöku á fjármálamarkaði, sér í lagi þátttöku kvenna, með því að veita aðgengilega fræðslu um fjárfestingar með nýstárlegum hætti.

Rakel Eva er með BA gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í nýsköpun og viðskiptaþróun frá sama háskóla.

Rakel Eva:

„Flugiðnaðurinn hefur sjaldan verið jafn áhugaverður og í dag en hann stendur frammi fyrir miklum áskorunum og  tækifærum þegar kemur að sjálfbærnitengdum málum. Þau flugfélög sem ætla sér að vera þátttakendur á markaðnum eftir fimm til tíu ár þurfa að taka þennan málaflokk föstum tökum og móta sér skýr, mælanleg og auðskiljanleg markmið á þessu sviði. PLAY ætlar að vera leiðandi í þessum málum og ég er gríðarlega spennt og ekki síður stolt af því að fá að taka þátt í þeirri vegferð með félaginu og því frábæra fólki sem þar starfar.“

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Play ætlar sér að vera til fyrirmyndar í málum er snúa að sjálfbærni- og samfélagsábyrgð enda eru þessi mál sífellt að verða mikilvægari fyrir öll fyrirtæki. Við finnum greinilega fyrir kröfu frá viðskiptavinum, fjárfestum og starfsfólki um að áhersla sé lögð á þennan málaflokk. Play, sem nýtt fyrirtæki, hefur hér sjaldgæft tækifæri til að setja þessi mál á oddinn strax frá upphafi og það er mikill fengur fyrir fyrirtækið að fá Rakel Evu, sem hefur verið áberandi talsmaður þessara mála, til að leiða þennan málaflokk hjá okkur. Ég er mjög spenntur að fá hana í liðið.“