Marel hefur tilkynnt um breytingar á skipulagi og framkvæmdastjórn félagsins með fækkun í framkvæmdastjórn úr tólf í níu og ásamt því að tveir nýir framkvæmdastjórar sæti í framkvæmdastjórn. Markmið breytinganna er sagt að auka skilvirkni og fjölbreytni og skerpa á markaðssókn.

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hefur verið skipuð framkvæmdastjóri fiskiðnaðar Marel (e. Executive Vice President Marel Fish) Guðbjörg tekur við starfinu af Sigurði Ólasyni sem nú kveður Marel. „Guðbjörg Heiða gekk til liðs við Marel árið 2011 og hefur síðustu ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra Marel á Íslandi. Áður leiddi hún vöruþróunarteymi félagsins á Íslandi og í Bretlandi. Guðbjörg hefur sýnt mikla leiðtogahæfileika í að stýra stefnumarkandi nýsköpunarverkefnum hjá Marel t.d. FleXicut lausninni sem er að umbylta fiskvinnslu á heimsvísu,“ segir í tilkynningu frá Marel.

Anna Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar (e. Executive Vice President Innovation). Anna Kristín tekur við starfinu af Viðari Erlingssyni sem nú tekur við nýju hlutverki hjá Marel. „Anna Kristín gekk til liðs við Marel árið 2015 og hefur hún hlotið hraðan framgang og gegnt ýmsum leiðtogastöðum í vöruþróun. Anna Kristín hefur náð miklum árangri í að leiða saman þverfagleg teymi sem hafa þróað stefnumarkandi lausnir fyrir markað,“ segir í tilkynningunni frá Marel.

Ulrika Lindberg, framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða og þjónustu (e. Executive Vice President Global Markets and Service), mun leiða sameinað svið alþjóðamarkaða og alþjóðlegrar þjónustu. Einar Einarsson, sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra alþjóðamarkaða lætur af störfum sem framkvæmdastjóri og stígur úr framkvæmdastjórn. Hann mun taka  við sínu fyrra starfi sem framkvæmdastjóri Marel í Bandaríkjunum. Einar hefur undanfarin tvö ár í starfi sínu sem framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða náð miklum árangri við að innleiða nýtt skipulag og forystu í S-Ameríku og Kína, en nýtt skipulag verður jafnframt innleitt á öðrum markaðssvæðum Marel. Aukin áhersla er á þjónustu við lykilviðskiptavini í gegnum allan líftíma tækjabúnaðar. Stefnt er að aukinni fjárfestingu í framlínu félagsins í sölu og þjónustu til viðskiptavina til að styðja við frekari vöxt í sölu, sem og hagræðingu í framleiðslu og stoðsviðum.

Árni Sigurðsson verður framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga (e. Chief Strategy Officer and EVP Strategic Business Units). Stefnumarkandi rekstrareiningar Marel ná yfir hugbúnað, frekari vinnslu (e. Secondary Processing) og tilbúin matvæli (e. Prepared Foods). Marel fjárfestir á þessum sviðum til að styðja við og auka vöxt í gegnum þrjá iðnaði Marel; kjúkling, kjöt og fisk.

Jesper Hjortshøj sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra fullvinnslu (e. EVP Further Processing) stígur úr framkvæmdastjórn og verður yfirmaður tilbúinna matvæla, sem áður kallaðist fullvinnsla (e. Further Processing), þar sem stefnt verður að frekari vexti á ýmsum mörkuðum, meðal annars fyrir óhefðbundin prótein og ferskar neytendavörur.

Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri, tekur nú við framkvæmdastjórn mannauðsmála til viðbótar við fjármál og upplýsingatækni. Davíð Freyr Oddsson sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála (e. EVP of Human Resources) fer úr framkvæmdastjórn en mun áfram bera ábyrgð á mannauðsmálum félagsins sem yfirmaður mannauðs og menningar (e. People and Culture) og mun heyra undir Lindu Jónsdóttur fjármálastjóra.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir í tilkynningu frá félaginu að breytingarnar séu nauðsynlegar. “Við lifum í síbreytilegum heimi og markaðsaðstæður fyrir matvælavinnslu breytast stöðugt. Þörfin fyrir hagkvæm og örugg gæðamatvæli sem eru framleidd á sjálfbæran hátt hefur aldrei verið jafn mikil og nú. Til þess að viðhalda leiðandi stöðu okkar á markaði og styðja við metnaðarfull vaxtarmarkmið okkar fyrir tímabilið 2017-2026 þurfum við stöðugt að endurmeta stöðuna og gera breytingar. Minni framkvæmdastjórn og skýrari skipting starfssviða er fyrsta skrefið í átt að einfaldara og skilvirkara skipulagi. Þessar breytingar munu skerpa á áherslum okkar um öfluga markaðssókn, stytta þróunartíma og markaðssetningu á nýjum hátæknilausnum og draga úr kostnaði.

Ég vil þakka þeim sem frá eru að hverfa úr framkvæmdastjórn fyrir mikilvægt framlag sitt til Marel í gegnum árin og óska þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi. Við bjóðum Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur og Önnu Kristínu Pálsdóttur velkomnar í framkvæmdastjórn Marel. Þær hafa báðar sýnt framúrskarandi leiðtogahæfileika í fyrri störfum sínum innan Marel. Fjölbreytt og reynslumikil framkvæmdastjórn félagsins er vel í stakk búin til að leiða Marel á þeirri vegferð að umbylta matvælavinnslu,“ er haft eftir Árna Oddi.

Aðalfundur Marel fer fram á í höfuðstöðvum Marel að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 18. mars næstkomandi klukkan fjögur.