Framkvæmdum fyrir 1.250 milljónir króna til stækkunar varmastöðvar við Hellisheiðarvirkjun, sem framleiðir heitt vatn fyrir íbúa og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, er lokið. Við það jókst afkastageta hennar úr 600 l/s í 925 l/s, eða um ríflega 50%.

Stækkun þessi var upphaflega ráðgerð árið 2023 en var flýtt sökum talsverðrar aukningar á notkun heits vatns á höfuðborgarsvæðinu umfram langtímaspár.

Helstu ástæður aukningarinnar eru fjölgun íbúa og ferðamanna, mikil uppbygging húsnæðis, þ.m.t. hótelbygginga sem nota mikið heitt vatn og ekki síst, meiri notkun á hvern íbúa sem ekki var fyrirséð þegar spár voru gerðar.

Þessi þróun hefur valdið álagi á heitavatnsborholur Veitna í Reykjavík og í Mosfellsbæ, einna helst þegar mjög kalt er í veðri til lengri tíma.

Hellisheiðarvirkjun Orka náttúrunnar
Hellisheiðarvirkjun Orka náttúrunnar
© Aðsend mynd (AÐSEND)

  • Hellisheiðarvirkjun

Léttir á borholum

Heita vatnið sem kemur til notenda frá virkjunum Orku Náttúrunnar á Hellisheiði og á Nesjavöllum er upphitað grunnvatn. Stækkun varmastöðvarinnar fól því í sér að bora þrjár kaldavatnsholur í Engidal auk þess að bætt var við einu varmaskiptapari og höfuðdælu.

Með aukinni framleiðslugetu virkjana á heitu vatni gefst kostur á því að taka hverfi í borginni af borholuvatni, sem er takmörkuð auðlind, og setja á vatn frá virkjunum. Veitur hafa undanfarið staðið í framkvæmdum með það fyrir augum að færa Árbæ, Ártúnsholt og síðar Sundahverfi af borholuvatni yfir á vatn frá virkjunum til frambúðar.

Arna Pálsdóttir , verkefnastjóri nýsköpunarverkefna hjá Orkuveitu Reykjavíkur, móðurfélagi ON og Veitna segir að eldri hverfi borgarinnar fái vatn úr borholum Veitna.

„Færsla Árbæjar, Ártúnsholts og síðar Sundahverfis á vatn frá virkjunum gefur okkur rými til að mæta aukinni þörf í eldri hverfunum þar sem mikil uppbygging hefur verið í formi þéttingar byggðar,“ segir Arna.

„Stækkun varmastöðvarinnar er því eitt púsl í það stóra verkefni að sjá höfuðborgarsvæðinu fyrir heitu vatni til húshitunar, bað- og sundferða og iðnaðar til langrar framtíðar og á sama tíma nýta með ábyrgum hætti þá dýrmætu auðlind sem heita vatnið okkar er.“