Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel segir félagið hafa komist í gegnum erfitt tímabil viðskiptahindrana og umróts á heimsmörkuðum í tilkynningu sem félagið hefur sent frá sér vegna minni framlegðar á fjórða ársfjórðungi síðasta árs heldur en félagið vænti.

Tekjur Marel jukust um 7,1% á síðasta ári, og fóru úr 1.198 milljónum evra í 1.284 milljónum evra samkvæmt óendurskoðuðu bráðabirgðauppgjöri sem félagið hefur birt. Samsvarar seinni upphæðin um 176,4 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag.

Þar af námu tekjur fjórða ársfjórðungs 320 milljónum evra sem er samdráttur um 3,3% frá sama tíma árið áður þegar tekjurnar námu 331 milljón evra.

EBIT framlegð félagsins lækkaði milli ára úr 14,6% árið 2018 í 13,5% fyrir árið 2019, sem sögð er í tilkynningu frá félaginu skýrast af lágri, eða 10% EBIT framlegð á fjórða ársfjórðungi 2019. Á sama tíma árið áður nam hún 14,6%.

„Þessa tímabundnu lækkun á rekstrarniðurstöðu má einkum rekja til óhagstæðrar samsetningar milli iðnaða og vörutegunda, sem og hækkunar á kostnaði til að mæta breytingum á eftirspurn eftir heimshlutum,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Pantanir félagsins jukust milli ára á fjórða ársfjórðungi, úr andvirði 296 milljóna evra í 303 milljónir evra, eða um 2,4%. Frjáls sjóðstreymi á fjórðungnum nam 53 milljónum evra, en félagið segir auknar innborganir á pantanir í lok fjórðungsins gefa betri horfur á markaði til kynna og aukna eftirspurn. Áfram segist félagið vera með óbreytt markmið um 12% árlegan meðalvöxt tekna á tímabilinu 2017 til 2026.

„Við birtum þessa tilkynningu um meginniðurstöður ársins nú í ljósi þess að rekstrarniðurstöður sýna í kringum 10% EBIT framlegð í fjórða ársfjórðungi, sem er undir væntingum. Þetta þýðir að við lokum árinu með um 13,5% EBIT framlegð, en hún hefur verið um 14-15% síðustu ár. Á sama tíma náðum við að skila 7% tekjuvexti og EBIT var svipað á milli ára,“ segir Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel.

„Í samstarfi við viðskiptavini okkar höfum við komist í gegnum erfitt tímabil þar sem markaðaðstæður lituðust af viðskiptahindrunum og umróti á heimsmörkuðum. Við horfum nú fram á bjartari tíma og merkjum aukna eftirspurn og vilja til fjárfestinga á markaði. Horfur fyrir pantanir eru góðar og með aðgerðum til að straumlínulaga rekstur félagsins má búast við auknum tekjum og bættri arðsemi jafnt og þétt eftir því sem líður á árið. Með framsæknu vöru- og þjónustuframboði, alþjóðlegu sölu- og þjónustuneti og sterkri fjárhagsstöðu, stefnir Marel áfram að 12% árlegum meðalvexti tekna yfir tímabilið 2017-2026 með hækkandi EBIT framlegð.“