Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,7% milli maí og júní 2017 samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands .  Afurðir stóriðju lækkuðu um 2,2%, matvæli lækkuðu um 0,2%, sjávarafurðir hækkuðu um 0,1%, og annar iðnaður hækkaði um 0,1%.

Miðað við júní 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 10,2%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 13,8%, annar iðnaður lækkað um 22,8%. Afurðir stóriðju hafa lækkað um 1,4% og matvæli lækkað um 2,3% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 9,5% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 11,6%.