Ríkisstjórnin hyggst bæði framlengja svokallaða lokunarstyrki til fyrirtækja sem og afnema 3,6 milljóna króna hámark á hvert, þó þannig að hámarkið verði 600 þúsund á hvern launamann viðkomandi fyrirtækis á hverja 30 daga sem fyrirtækið er lokað.

Í dag samþykkti ríkisstjórn Íslands að framlengja svokallaða lokunarstyrki til rekstraraðila sem gert er að sæta lokun á starfsemi eða stöðva hana frá 18. september 2020. Mun heimildin til styrkjanna verða til miðs næsta árs.

Lögin eru hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr tjóni vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og skapa öfluga viðspyrnu í kjölfar hans að því er segir á vef stjórnarráðsins.

Styrkur jafnhár rekstrarkostnaði

Stærsta breytingin með frumvarpinu er að fjárhæðir lokunarstyrkja sæta ekki lengur sömu hámörkum og áður en samanlagt hámark lokunarstyrkja var 3,6 milljónir í vor. Óbreytt er að fjárhæð styrks skal vera jafnhá rekstrarkostnaði á tímabili lokunar. Hún getur þó ekki orðið hærri en 600 þús. kr. á hvern launamann hjá rekstraraðila fyrir hverja samtals 30 daga lokun.

Í ljósi þess að óvissa ríkir um þróun farsóttarinnar er lagt til að heimild til framlengingar verði ekki einskorðuð við þá rekstraraðila sem þegar hefur verið gert að loka starfsemi sinni tímabundið nú í haust.

Þannig er lagt til að úrræðið hafi gildistíma fram á mitt ár 2021 og verði tekið til endurskoðunar á fyrsta ársfjórðungi 2021 m.t.t. aðstæðna og þróunar faraldursins. Skilyrði styrkveitinga í frumvarpinu eru í öllum meginatriðum sambærileg og vegna fyrri lokunarstyrk