Frá og með næstkomandi mánudegi verða fréttatímar Stöðvar 2 ekki lengur í opinni dagskrá eins og verið hefur í þau 34 ár sem stöðin hefur verið starfandi. Jafnframt mun Stöð 2 Maraþon breyta um nafn og verða að Stöð 2+ auk þess sem sveigjanleiki áskriftarfyrirkomulags er aukinn þannig að engin binding er utan líðandi mánaðar í áskriftum.

Frá og með 18. janúar verða kvöldfréttir Stöðvar 2 aðeins aðgengilegar áskrifendum en í tilkynningu frá Sýn segir að þannig verði grundvöllur fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar tryggður til framtíðar. Fréttir verða áfram öllum aðgengilegar í beinni útsendingu á Bylgjunni og birtast í formi myndbrota á Vísi eftir að útsendingu lýkur á Stöð 2.

Þórhallur Gunnarsson , framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2 kallar þetta sóknaraðgerð.

„Með þessari aðgerð erum við að tryggja fréttastofuna enn frekar í sessi. Við erum þess fullviss að með stuðningi áskrifenda skapist forsendur til að standa vörð um öfluga fréttaþjónustu og framleiðslu innlends efnis,“ segir Þórhallur.

„Á síðasta ári framleiddi Stöð 2 alls 48 íslenskar þáttaraðir og viðburði sem er gríðarleg aukning frá fyrri árum. Við höldum ótrauð áfram á sömu braut og kynnum á sama tíma fleiri viðskiptavinum fyrir Stöð2+ stærstu efnisveitu landsins með íslenskt efni, á áður óþekktu verði.”

Þórir Guðmundsson, ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar segir breytingarnar gera fyrirtækinu kleift að standa vörð um öfluga fréttaþjónustu í sjónvarpi.

„Breyttar aðstæður kalla á nýjar áherslur í fjölmiðlun en það sem breytist ekki er áhersla okkar á traust, vandvirkni og nálægð við fólk. Fréttastofan verður því áfram leiðandi í miðlun frétta – á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni,“ segir Þórir.

Áskrift að Stöð 2 fylgir framvegis aðgangur að Stöð 2+ (áður Maraþon) á öðru verði en áður, eða á 7.990 krónur á mánuði. Hægt verður að tryggja sér áskrift frá og með morgundeginum, þriðjudeginum 12. janúar.

Á sama tíma verður breyting á áskriftarskilmálum sem felst í því að engin binding er á áskriftum umfram líðandi mánuð. Hægt er að segja upp eða gera breytingar á áskriftum fyrir 25. hvers mánaðar sem taka þá gildi fyrsta dag næsta mánaðar.