Kynningarfundur um hver eru mest áríðandi atriðin á sviði orkumála árið 2018 skv. skýrslu Alþjóða orkuráðsins, World Energy Issue Monitor. Skýrslan skilgreinir helstu breytingar, áskoranir og óvissu á sviði orkumála hér á landi sem framundan eru, að mati aðila í orkumálum og tengdum greinum. Fjallað er um fjölmarga þætti s.s. efnahagsmál, tækni, endurnýjanlega orku, hrávöruverð, gjaldmiðla, loftlagsmál, orkuflutninga, orkunýtni o.fl. Ísland er með í skýrslunni í annað sinn.
Dagskrá:
Setning: Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri
World Energy Issues Monitor: Global Issues
– Einari Kiesel, framkvæmdastjóri World Energy Council Europe
World Energy Issue Monitor - Iceland
– Baldur Pétursson, verkefnisstjóri fjölþjóðleg verkefni og PR
Staða Íslands - viðhorf - umræður
– Sigurlilja Albertsdóttir, hagfræðingur Samorku
Fundarstjóri: Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku
Fundurinn fer fram í húsnæði Samorku, Borgartúni 35, 105 Reykajvík. Boðið verður upp á létta morgunhressingu.