Honest Company, sem var stofnað af leikkonunni Jessicu Alba árið 2011, stefnir á skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum í næstu viku. Markaðsvirði fyrirtækisins yrði um 1,5 milljarðar dala miðað við útboðsverðið.

Honest co. selur barnavörur á borð við bleyjur, blautþurrkur og sjampó ásamt snyrti- og hreinsivörum. Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á að nota eiturefnalaus efni í vörunum sínum, sérstaklega í barnavörum.

Á síðasta ári námu tekjur Honest um 301 milljón dala, samanborið við 236 milljónir árið áður, en fyrirtækið skilaði þó 14,5 milljóna dala tapi. Alba sagði í bréfi til fjárfesta að frá því að faraldurinn hófst hefur fólk orðið varkárara yfir því sem það tekur með heim til sín.

Virði eignarhlutar Alba er um 96 milljónir dala eða um 12 milljarðar króna miðað við útboðsverðið, að því er kemur fram í frétt Yahoo finance . Leikkonan hyggst ekki selja nein hlutabréf í frumútboðinu samkvæmt útboðsgögnum.

Áhuginn kviknað út af veikindum í barnæsku

Í bréfi sem hún skrifar til þátttakenda í útboðinu segir hún að áhugi hennar á hreinlætisvörum stafi af veikindum hennar í barnæsku. Hún sagðist hafa átt við langvinn veikindi, alvarlegan astma og ofnæmi og hafi þurft að verja miklum tíma á sjúkrahúsum.

„Það voru engar varanlegar lausnir á heilbrigðisvandamálum mínum og þegar ég var tíu ára áttaði ég mig á því við því hvernig heilsa getur einkennt líf manns,“ skrifar Alba.

Hugmyndin að fyrirtækinu kom árið 2008 þegar hún var ólétt af fyrsta barninu sínu og móðir hennar gaf henni þvottaefni frá stóru fyrirtæki sem gaf henni útbrot. Í kjölfarið fór hún að rannsaka allar vörur í baðherberginu sínu, staðráðin í að barnið hennar þyrfti ekki að upplifa sömu veikindi og hún.

„Hvernig getur þetta verið öruggt fyrir börn ef ég fæ svona útbrot,“ sagði Alba í viðtali við Forbes árið 2015. Hún sagðist hafa komst að því að jarðolíuefni (e. petrochemicals), formaldehýð og eldtefjandi efni væru í hefðbundnum heimilisvörum líkt og gólfhreinsiefnum og í dýnum.

Hún sagðist hafa orðið óþreyjufull að leita að náttúrulegum og umhverfisvænum vörum sem voru ekki rándýrar og hannaðar fyrir eðlilegt fólk. Eftir að hafa leitað að viðskiptafélögum í þrjú ár hóf fyrirtækið starfsemi árið 2012. Tekjurnar námu 10 milljónum dala á fyrsta rekstrarárinu 2012. Tveimur árum síðar voru tekjurnar orðnar 150 milljónir dala.