Þáttaskil urðu í rekstri flugfélagsins PLAY í dag þegar fyrsta áætlunarferðin var farin vestur um haf til Bandaríkjanna. Áfangastaðurinn var Baltimore/Washington International-flugvöllurinn en framvegis verður flogið þangað daglega.

„Þessi áfangi er afar þýðingarmikill fyrir PLAY. Nú hefst næsti kafli í sögu félagsins með farþegaflutningum yfir Atlantshafið sem stækkar markaðssvæði félagsins til muna,“ segir í tilkynningu flugfélagsins. Play muni þannig geta flutt farþega á milli austurstrandar Bandaríkjanna og Evrópu með viðkomu á Keflavíkurflugvelli.

Líkt og fyrr segir mun Play fljúga til Baltimore/Washington International flugvallarins. Svo mun flugfélagið hefja áætlunarflug til Boston þar sem flogið verður til Logan-flugvallar og fyrsta flugið til New York verður í júní. Þá tilkynnti Play nýlega að frá og með 30. september næstkomandi mun flugfélagið fljúga þrisvar í viku til til Orlando.

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Við höfum beðið spennt eftir þessum degi og nú þegar komið er að honum erum við auðvitað bókstaflega í skýjunum með þetta. Bandaríkjaflugið er aðalatriði í okkar starfsemi, en við höfum lært að það er ekkert grín að hefja áætlunarferðir til nýrrar heimsálfu. Það hefur þó sannarlega tekist og niðurstaðan er vönduð, áreiðanleg og metnaðarfull flugáætlun.

Áhugi viðskiptavina er strax tilfinnanlegur, og raunar meiri en við þorðum að vona. Enn og aftur er ég gáttaður á kraftinum í samstarfsfólki mínu hjá PLAY. Það er því að þakka sem við lifum þennan hátíðisdag í sögu félagsins og saman horfum við fram á við, bjartsýnni og spenntari en nokkru sinni fyrr.”