Ný greining Capacent um stöðu og horfur á fasteignamarkaði var kynnt á fjölsóttum fundi um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni sem haldinn var í Ráðhúsinu í morgun.  Þar kom meðal annars fram að talin er þörf fyrir 3.200-4.000 nýjar íbúðir á þessu og næsta ári. Snædís Helgadóttir, ráðgjafi hjá Capacent kynnti greininguna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Samkvæmt greiningunni fer fyrstu kaupendum íbúða fjölgandi og voru 26% þeirra sem keyptu íbúðir í borginni á fyrstu tveimur ársfjórðungum ársins 2018 að kaupa sína fyrstu íbúð. Hlutfall fyrstu kaupenda hefur verið nánast stöðugt hækkandi frá árinu 2009 þegar 6% íbúða voru keyptar af fyrstu kaupendum en árið 2014 var þetta hlutfall komið í 17%.

Kaupverð í fjölbýli hækkað umtalsvert

Í greiningu Capacent er dregið  fram að kaupverð íbúða í fjölbýlum hefur hækkað umtalsvert frá árinu 2012 og er nú ríflega 20% hærra en byggingarkostnaður 3ja til 4ra hæða fjölbýlishúsa og tæplega 32% hærra en byggingarkostnaður fjölbýlishúsa með lyftu. Hins vegar heldur byggingarkostnaður sérbýla áfram að vera hærri en kaupverð þeirra.  Kaupverð einbýlishúsa er ríflega 16% lægra en byggingarkostnaður og kaupverð raðhúsa á einni hæð er rúmlega 6% undir byggingarkostnaði.

Það kemur því ekki á óvart að á síðustu árum hefur fjölbýlishúsum fjölgað á kostnað sérbýla. Árið 2017 voru 28% íbúða í Reykjavík í 6-12 íbúða húsum og 25% í húsum með 13 eða fleiri íbúðum.  Um 19% íbúðarhúsnæðis í Reykjavík var á sama tíma í einbýli.

Íbúðaverð hækkað umfram ráðstöfunartekjur

Íbúðaverð hefur hækkað umtalsvert umfram ráðstöfunartekjur og því tekur það íbúa á aldrinum 30-34 ára ríflega tvöfallt fleiri mánuði að greiða meðalverð fyrir 90 fermetra íbúð í  fjölbýli í dag en það gerði árið 1997, samkvæmt því sem fram kemur í greiningu Capacent. Eiginfjárhlutfall almennings hefur hækkað frá því það náði lágmarki árið 2010 og er nú hærra en það hefur verið í yfir tvo áratugi eða eins langt og mælingar Hagstofunnar ná.  Þá kemur fram í greiningunni að tæplega 80% Reykvíkinga 25 ára og eldri búa í eigin húsnæði, rúmlega 16% í leiguhúsnæði og um 4% búa í foreldrahúsum. Ef hins vegar er litið á búsetufyrirkomulag einstaklinga á aldrinum 25-34 ára búa 56% í eigin húsnæði, 29% í leiguhúsnæði og 16% í foreldrahúsum.

Í kjölfar aukins ferðamannastraums hefur fjöldi hótelherbergja í borginni aukist mikið á síðustu árum og hefur hótelum fjölgað um 45% að minnsta kosti frá árinu 2015. Capacent gerir ráð fyrir að á árunum 2019-2020 verði um 9 hótel í byggingu á höfuðborgarsvæðinu með 1.332 ný herbergi. Leiddar eru líkur að því að áframhaldandi uppbygging hótelherbergja og hert eftirlit með starfsemi í heimagistingu muni leiða til fækkunar íbúða í heimagistingu.  Þetta muni draga úr þörf fyrir íbúðir á næstu árum um 200 íbúðir.

Kynningu og fasteignagreiningu Capacent má nálgast á vef Reykjavíkurborgar.