GeoSilica setur stefnu sína á erlendan markað en fyrirtækið fór nýlega erlendis á sýningar til þess að mynda sambönd við erlenda dreifiaðila. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Í byrjun apríl var það Natural and Organig products Europe 2019 í London, sem er sýning fyrir fyrirtæki með náttúrulegar og lífrænar vörur í Evrópu. Í byrjun maí var það svo VitaFoods í Sviss sem er stærsta sýning í Evrópu þar sem framleiðendur á heilsuvörum og hráefnum koma saman til að sýna vörur og tengjast öðrum í samskonar iðnaði, bæði til þess að finna vörur til þess endursölu og þróa nýjar vörur.

GeoSilica vakti mikla athygli hjá erlendum aðilum á báðum sýningum. Þá má einna helst nefna vegna þeirra einstöku framleiðsluaðferðar sem fyrirtækið hefur þróað sem þekkist hvergi annarsstaðar í heiminum við framleiðslu kísils. Íslensk náttúra hefur gefið gríðarlegan innblástur í alla starfsemi fyrirtækisins og það er einnig það sem heillar erlendis. GeoSilica þróar og framleiðir kísilsteinefni til inntöku sem hefur vakið mikla athygli á íslenskum markaði og fengið frábærar viðtökur á síðustu árum. Stefnan er því sett á það að allur heimurinn fái að kynnast þessu mikilvæga steinefni sem kísill er.

Nú er Geosilica í viðræðum við aðila víðsvegar um sölu og dreifingu bæði á GeoSilica vörum og hráefni en í þeim viðræðum má nefna lönd á borð við Bangladesh, Frakkland, Singapore, Þýskaland, Noreg, Pólland, Spán, Sviss, Svíþjóð, Tyrkland, Bretland, Kína, Finnland, Serbía og Litháen. ,,Vörunar hafa vakið gríðarlega athygli um allan heim. Erlendir aðilar eru mjög heillaðir af því hvað varan er hrein og einnig er framleiðsluaðferðin eitthvað sem þekkist hvergi annarsstaðar. Miðað við þær viðtökur sem við höfum fengið erum við spennt að kynna vöruna okkur fyrir heiminum!” segir Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri og stofnandi GeoSilica.