Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa undirritað samkomulag um eftirlit með launum og starfskjörum starfsmanna starfsmannaleiga, ábyrgð notendafyrirtækja og sérstaka viðurkenningu starfsmannaleiga.

Á vef Samtaka atvinnulífsins segir að starfsmannaleigur jafnt sem notendafyrirtæki þurfi að vera meðvituð um skyldur sínar gagnvart starfsmönnum, þannig að tryggt sé að starfsmenn starfsmannaleiga njóti þeirra kjara og réttinda sem þeim ber.

Til að tryggja betur framangreind markmið og réttindi starfsmanna starfsmannaleiga eru samningsaðilar sammála um eftirfarandi aðgerðir:

  • Starfsmannaleigum gefist kostur á að undirgangast sérstakt launaeftirlit af hálfu stéttarfélaga og samráðsnefndar ASÍ og SA. Það felur í sér að þær leggi fram gögn svo að hægt sé að sannreyna að þær uppfylli skilyrði laga og kjarasamninga varðandi laun og önnur starfskjör starfsmanna sinna.
  • Samráðsnefnd ASÍ og SA veiti þeim starfsmannaleigum viðurkenningu sem undirgengist hafa sérstakt launaeftirlit og uppfylla skilyrði samkomulagsins að öðru leyti.
  • Lögfest verði ábyrgð notendafyrirtækja á vangoldnum launum starfsmanna starfsmannaleiga sbr. frumvarp félags- og jafnréttisráðherra sem dreift hefur verið á Alþingi, mál nr. 468.