Gissur Kolbeinsson var nýverið ráðinn framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna, BHM, og hefur þegar hafið störf, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Gissur hefur starfað hjá BHM um árabil, fyrst sem fulltrúi sjóða og sem fjármála- og rekstrarstjóri frá árinu 2015. Hann hefur einnig verið skilgreindur sem staðgengill framkvæmdastjóri undanfarin tvö ár.

Gissur er með B.S.- gráðu í viðskiptafræði frá háskólanum á Bifröst og meistaragráðu í stjórnun- og stefnumótum frá Háskóla Íslands.