58 virk fyrirtæki voru lýst gjaldþrota á þriðja ársfjórðungi, það er frá júlí til og með september, sem er 5% fjölgun frá árinu áður.
Í heildina voru fyrirtækin sem fóru í gjaldþrot á tímabilinu 95 að því er Hagstofa Íslands greinir frá.

Samtals voru 41 fyrirtæki, sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins, tekin til gjaldþrotaskipta í september síðastliðnum. Af þeim voru 28 með virkni árið 2019, það er annaðhvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum.

Þar af voru 18 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 6 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, 16 í einkennandi greinum ferðaþjónustu og 18 í öðrum atvinnugreinum.

Fyrirtæki sem urðu gjaldþrota á þriðja ársfjórðungi voru með um 500 launþega að jafnaði árið 2019, þar af voru um 130 launþegar á fyrra ári í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og um 190 í einkennandi greinum ferðaþjónustu.

Fyrir fyrirtæki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð er þetta 70% aukning frá sama ársfjórðungi 2019 og 35% aukning á fyrri meðalfjölda launþega fyrirtækja í einkennandi greinum ferðaþjónustu.

Meðalfjöldi launþega á fyrra ári hjá fyrirtækjum í heild- og smásöluverslun sem lýstu yfir gjaldþroti á þriðja ársfjórðungi var hins vegar einungis 11, sem er 85% minna en fyrir þriðja ársfjórðung 2019.