Ég á erfitt með að trúa því að þegar séu liðin tvö ár frá því að WOW air flaug sitt síðasta flug og ég þurfti að horfast í augu við þá staðreynd að þessu ótrúlega ævintýri væri lokið,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og fyrrverandi forstjóri Wow Air í færslu á Facebook tveimur árum eftir að félagið fór í þrot.

„Að sumu leyti er þetta þegar orðinn fjarlægur draumur en samt líður vart sá dagur að ég hugsi ekki um þann frábæra hóp sem gerði WOW að veruleika. Þetta var einstakt í alla staði,“ segir Skúli.

Fóru að elta Icelandair

Honum finnst ekki öll gagnrýni á félagið og endalok þess hafa verið sanngjörn. „Margt hefur verið skrifað um fall WOW og að vanda vantar ekki "sérfræðinga" með mis gáfaða eftiráspeki, en í grunninn er þetta einfalt. WOW hætti að vera lággjaldafélag og þar með afvega leiddumst við, fyrst hægt og svo mjög snögglega. Það var þessi stefnubreyting sem varð WOW að falli. Við gleymdum okkur í velgengninni og misstum sjónar af uppruna okkar sem hreinræktað lággjaldafélag þar sem allt gekk út á að bjóða ávallt lægstu mögulegu fargjöldin með bros á vör. Þess í stað fórum við að eltast við "legacy" félög og máta okkur við Icelandair og eltast við markaðshlutdeild í stað arðsemi og kostnaðaraðhalds,“ segir Skúli.

Kostnaðurinn varð of hár

Skúli segir ekki rétt að viðskiptalíkan Wow hafi verið ósjálfbært. „Við innleiddum breiðþotur og stærri "premium" sæti og bættum við allsskyns þjónustu með tilheyrandi kostnaði sem við reyndum að réttlæta með þeim rökum að tekjurnar myndu hækka enn meir, það reyndust dýrkeypt mistök. Því hefur verið haldið fram að fargjöld WOW hafi verið ósjálfbær og því hafi viðskiptamódelið aldrei gengið til lengdar. Því fer fjarri, það eru aðeins tvö flugfélög í hinum vestræna heimi að mér vitandi sem ekki hafa þegið neinn ríkisstyrk á tímum COVID. Það eru Wizzair og Ryanair, hvort tveggja hreinræktuð lággjaldafélög sem eiga það sameiginlegt að stöðugt bjóða upp á lægstu fargjöldin á öllum sínum flugleiðum og oftast tugum prósentum lægri en keppinautar sínir. Engu að síður hafa bæði Wizzair og Ryanair skilað betri arðsemi og vaxið hraðar en nánast öll önnur flugfélög í heimi ár eftir ár. Þeirra galdur er fólgin í því að vera með allan fókus á kostnað og arðsemi leiðar kerfisins frekar en að einblína á tekjuhliðina eða eins og Michael O´Leary hefur ítrekað sagt, flugfélög fara ekki á hausinn vegna of lágra fargjalda heldur vegna of hás kostnaðar.“

Í því hafi vandi Wow legið. „Eftir frábæra byrjun þar sem við skiluðum met hagnaði 2015 og 2016 eða um 6 milljörðum á tveimur árum sem lággjaldafélag, þá er sorglegt að sjá hvernig reksturinn fór úrskeiðis í kjölfar þess að við hættum að fylgja okkar stefnu og uppruna,“ segir Skúli.

Skáru of seint niður

„Við reyndum hvað við gátum að laga reksturinn og tókum erfiða en nauðsynlega ákvörðun í lok árs 2018 þar sem við skiluðum öllum breiðþotunum og fórum aftur í okkar upprunalega búning sem lággjaldafélag og það var magnað að sjá hversu hratt reksturinn lagaðist í kjölfarið en því miður var það um seinan þrátt fyrir mikla þrautseigju og dugnað allra sem komu að WOW air allt undir það síðasta.“

Saknar samstarfsfólksins

Um leið minnist hann gömlu samstarfsmanna sinna með söknuði. „Ég mun aldrei gleyma stemningunni sem ríkti hjá okkur og þeim anda og vilja sem gerði okkur kleift að vinna kraftaverk dag eftir dag undir óheyrilega erfiðum kringumstæðum. Sem dæmi um það vorum við með 94% sætanýtingu í mars þrátt fyrir endalausa mótvinda á þeim tíma. Allt fram að morgni síðasta dags vorum við að vinna í því að tryggja framtíð félagsins og vorum sannfærð um að það myndi takast en því miður fór sem fór. Eftir því sem tíminn líður sé ég betur hversu einstakt þetta ævintýri var og hversu mikið ég sakna fólksins okkar, stemmningunni, kraftinum og þeirri miklu uppbyggingu sem átti sér stað hjá WOW. Ég er óheyrilega þakklátur og stoltur yfir því að hafa fengið tækifæri til að leiða og taka þátt í þeirri uppbyggingu með öllu okkar frábæra starfsfólki, samstarfsaðilum og farþegum. Það voru forréttindi að vinna með ykkur öllum og ég sakna WOW í öllu sínu veldi! Takk fyrir ferðalagið!“

Ég á erfitt með að trúa því að þegar séu liðin tvö ár frá því að WOW air flaug sitt síðasta flug og ég þurfti að horfast...

Posted by Skuli Mogensen on Sunday, 28 March 2021