Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 1,79% í dag og endaði í 1856,11 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 1,29% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 2,00% í viðskiptum sem hljóða upp á 1,5 milljarða króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 35,45 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 3,92% í 376 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 er þá 69 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Össurar, eða um 1,47% en þó í mjög litlum 74 þúsund króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Össurar er 470 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 4,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,8% í dag í 4,5 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 2,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 0,5 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 1,9 milljarða króna viðskiptum.