Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,87% í dag og endaði í 1825,69 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 2,91% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eimskips, eða um 3,33% í viðskiptum sem hljóða upp á 610,5 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 271,5 krónum á hlut. Gengi bréfa Icelandair hækkaði þá einnig, eða um 1,37% í tæplega 1,2 milljarða króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 33,2 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Haga, eða um 0,52% í viðskiptum sem hljóða upp á 132 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 48,10 krónur. Gengi bréfa Símans lækkaði þá einnig, eða um 0,64% í viðskiptum sem hljóða upp á 67 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 3,11 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,8 miljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var tæplega 4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,7% í dag í 2,8 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 3,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 0,3 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,4% í 3,3 milljarða viðskiptum.