Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq á Íslandi hækkaði um 2,54%, upp í 1.866,59 stig, í 4 milljarða króna viðskiptum dagsins.

Mest var hækkun bréfa Skeljungs, eða um 4,54% í 117 milljóna króna viðskiptum dagsins, en gengið fór upp í 7,37 krónur.

Næst mest var hækkun bréfa Festi, eða um 4,17% í 277 milljóna króna viðskiptum, og er gengi bréfa í félaginu nú 112,50 krónur.

Mestu viðskiptin voru eftir sem áður með bréf Marel, fyrir tæplega 1,4 milljarða króna, og hækkuðu þau í 2,88% og standa þau nú í 500,0 krónum.

Einungis þrjú félög lækkuðu í virði í kauphöllinni í dag, mest var lækkun á gengi bréfa HB Granda, eða um 2,27% í 49 milljóna króna viðskiptum, sem færðu bréfin niður í 30,10 krónur. Einnig lækkuðu bréf Heimavalla, um 0,79%, og bréf Reita, um 0,26%, í 18 milljóna króna og 464 milljóna króna viðskiptum. Fór gengi Heimavalla í 1,26 krónur og Reita í 75,80 krónur.