Öll félög á markaði hækkuðu í viðskiptum dagsins nema Eimskip, Heimavellir og Icelandair sem stóðu í stað. Verð á hlutabréfum í TM hækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 4,09% í 228 milljóna króna viðskiptum.

Fyrr í dag sendi TM frá sér afkomuviðvörun þar sem fram kom að hagnaður TM á öðrum ársfjórðungi þessa árs væri 1,6 milljarðar króna fyrir skatta.

Reitir hækkuðu næst mest í viðskiptum dagsins eða um 2,6% í 126 milljóna króna viðskiptum. Þá hækkuðu Hagar um 2,36% í 74 milljóna króna viðskiptum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,31% en heildarvelta á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta nam 2,5 milljörðum í dag.