Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað stjórn Matvælasjóðs. Gréta María Grétarsdóttir mun fara með hlutverk stjórnarformanns, samkvæmt tilkynningu Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.

Ásamt Grétu er stjórnin skipuð af þeim Gunnari Þorgeirssyni sem tilnefndur var af Bændasamtökum Íslands, Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, og Karli Frímannssyni.

Alþingi samþykkti nýverið frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Matvælasjóður verður til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi. Unnið hefur verið að stofnun sjóðsins undanfarið ár í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en ákveðið var að flýta vinnu við að setja sjóðinn á fót sem hluta af aðgerðum til að bregðast við áhrifum COVID-19. Alls verður 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins á þessu ári.

„Við Íslendingar erum matvælaþjóð. Byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti, bæði til sjós og lands,“ er haft eftir Kristjáni Þór í fréttatilkynningunni.

„Því er stofnun Matvælasjóðs, með áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, ekki bara skref í rétt átt – heldur ein forsenda þeirrar sóknar sem fram undan er í íslenskri matvælaframleiðslu.“