Heilbrigðisráðherra setur á grímuskyldu fyrir alla fædda fyrir 2015 hafi þeir ekki tök á að tryggja tveggja metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Veitingahúsum með vínveitingaleyfi ber að loka klukkan 9 á kvöldin. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Nýju reglurnar taka gildi frá og með miðnætti um land allt.

Heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi laugardaginn 31. október. Sömu reglur munu gilda um allt land. Ríkisstjórnin vonast eftir að hægt verði að komast fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar fyrir jól með mjög hertum aðgerðum strax.

Meginbreytingin nú felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember. Þær verða endurmetnar eftir aðstæðum með hliðsjón af því hvort hægt verði að aflétta þeim fyrr, eða hvort framlenging sé nauðsynleg.

Helstu takmarkanir sem nú taka gildi eru:

  • 10 manna fjöldatakmörk meginregla.

- Heimild fyrir 30 manns í útförum en 10 að hámarki í erfidrykkjum.
- 50 manna hámarksfjöldi í lyfja- og matvöruverslunum en reglur um aukinn fjölda með hliðsjón af stærð húsnæðisins.
- Fjöldatakmarkanir gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug eða störf viðbragðsaðila.
- Fjöldatakmarkanir gilda ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og dómstóla.
10 manna fjöldatakmörk eiga ekki við þegar fleiri búa á sama heimili.

Íþróttir óheimilar.

  • Sundlaugum lokað.
  • Sviðslistir óheimilar.
  • Krám og skemmtistöðum lokað.
  • Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega ekki hafa opið lengur en til 21.00.
  • Grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  • Börn fædd 2015 og síðar undanþegin 2 metra reglu, fjöldamörkum og grímuskyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar).

Undanþáguheimildir:

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkunum vegna félagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast. Þar undir fellur m.a. heilbrigðisstarfsemi og félagsþjónusta. Ráðherra getur veitt undanþágu við banni frá íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, til dæmis alþjóðlegra keppnisleikja. Ný reglugerð um takmarkanir á skólastarfi verður kynnt í næstu viku.

Hér má sjá beint frá blaðamannafundi um málið: