Í gegnum dótturfélag sitt Travelshift, hefur Guide to Iceland komist að samkomulagi við Philippine Airlines um stofnun markaðstorgs fyrir ferðaþjónustu í sameiginlegri eigu beggja aðila. Hið nýja markaðstorg nefnist Guide to Philippines og er því ætlað að feta í fótspor þess mikla árangurs sem Guide to Iceland og Travelshift hafa náð við markaðssetningu á Íslandi sem ferðamannastað undanfarin ár.

Travelshift er hugbúnaðararmur Guide to Iceland. Fyrirtækið hefur síðustu misseri unnið að þvi að koma á laggirnar nýjum samstarfsverkefnum utan Íslands,  en Filippseyjar verða fjórða landið sem Travelshift hugbúnaðurinn nemur utan landsteinanna.

„Við ráðumst í þetta verkefni af miklum hug,” segir Sigurður Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Travelshift. „Við höfum unnið þrotlaust að því að færa Travelshift frá því að vera hreinn innanhúshugbúnaður yfir í að verða hugbúnaðarlausn sem við getum nýtt alþjóðlega. Nú höfum við fundið frábæran samstarfsaðila í Philippine Airlines, stærsta flugfélagi Filippseyja, og verkefnið fer vel af stað.”

Áætlað er að Guide to Philippines verði fleytt af stað á þriðja fjórðungi þessa árs. „Hið nýja félag mun­ geta nýtt þá þróun sem hefur átt sér stað á Travelshift hugbúnaðnum á síðustu árum. Það þýðir að við munum geta stytt verulega þann tíma sem það tekur að komast af stað af fullum krafti.

Af sama skapi mun sterk staða Philippine Airlines, og það tengslanet sem fyrirtækið býr yfir innan ferðamannaiðnaðarins á Filippseyjum, reynast gríðarleg lyftistöng fyrir Guide to Philippines. Markaðurinn er risastór, og við hlökkum til að byggja stórt alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi," segir Sigurður ennfremur.