Gylfi Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Eimskips, hefur farið fram á að rannsókn lögreglunnar á kæru Samkeppniseftirlitsins frá árinu 2014 verði hætt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip . Þar segir að lögmaður Gylfa hafi tilkynnt félaginu þetta eftir lokun markaða á föstudaginn. Gylfi lét af störfum sem forstjóri um áramótin og varð framkvæmdastjóri Eimskips í Norður-Ameríku, sem er sama starf og hann gegndi áður en hann varð forstjóri árið 2008.

Málið snýr að meintum samkeppnislagabrotum Eimskips sem hefur verið til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu frá árinu 2010.

Gylfi telur að rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi ekki hafist með lögmætum hætti. Rannsókn Héraðssaksóknara sé afleiðing af rannsókn Samkeppniseftirlitsins sem sé slíkur ágalli að hún sé ólögmæt og að hana beri að fella niður. „Rannsókn Héraðssaksóknara sé afleiðing af rannsókn Samkeppniseftirlitsins sem sé slíkur ágalli að hún sé ólögmæt og að hana beri að fella niður. Jafnframt byggir Gylfi Sigfússon kröfu sína á því að rannsóknin hafi ekki farið fram á lögmætan hátt og að í henni felist brot á stjórnarskrárvörðum mannréttindum. Hún byggi á gögnum sem fengin hafi verið með hótunum um beitingu viðurlaga eftir að hann var kærður. Svo virðist sem Héraðssaksóknari hafi rannsakað atriði sem Gylfi hafi ekki verið kærður fyrir. Þá hafi rannsóknin staðið yfir í mjög langan tíma," segir í tilkynningunni.

Þá er fullyrt að rannsóknin á hendur honum sé ólögmæt, þar sem Samkeppniseftirlitið hafi leynt héraðsdóm upplýsingum við beiðni um húsleitarúrskurð hjá Eimskip, að lagaheimildir hafi ekki verið uppfylltar til húsleita, að lagaheimild hafi ekki staðið til þess að rannsaka hin haldlögðu gögn og að rannsókn málsins á hendur honum hafi í reynd verið í höndum starfsmanna Samkeppniseftirlitsins en ekki Héraðssaksóknara, eins og lög áskilja.

Eimskip leggur áherslu á að um sé að ræða kröfu Gylfi en félagið muni fylgjast með málinu „í ljósi þess að margt sem fram kemur í kröfu Gylfa Sigfússonar gæti einnig átt við um félagið sjálft og málið á hendur því."