Ekkert inntökupróf verður í hagfræðideild Háskóla Íslands í haust eins og verið hefur síðustu fjögur árin. Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar segir að í staðinn verður stærðfræðipróf sem gefur nemendum möguleikann á að meta sjálfir stöðu sína að því er Vísir greinir frá.

,,Við tókum þetta upp árið 2012 og erum að hætta með þetta aftur,“ segir Ásgeir sem segir ýmsar ástæður fyrir ákvörðuninni.

„Þegar við fórum af stað með þetta var álitið að aðrir væru að fara af stað með þetta líka, að aðrar deildir eins og viðskiptafræði myndu fylgja í kjölfarið. Við litum á að þarna værum við brautryðjendur en það hefur ekki gengið eftir.

Við í deildinni stefnum að því að hafa í staðinn stærðfræðipróf sem nemendur geta tekið sjálfir og metið sína eigin stöðu í kjölfarið.“