Viðbragðsstjórn og farsóttarnefndar Landspítala ákvað í dag að færa spítalann af óvissustigi á hættustig í samræmi við viðbragðsáætlun Landspítala.
„Upp hafa komið Covid -19-smit meðal starfsfólks sem kallar á sóttkví starfsfólks sem kann að hafa áhrif á starfsemi spítalans," segir í tilkynningu frá spítalanum. „Annars vegar er um að ræða smit í Skaftahlíð 24 þar sem skrifstofur og kennslurými eru til húsa og hins vegar í skurðlækningaþjónustu."
Í dag fara fram umfangsmiklar skimanir fyrir Covid -19 og er gert ráð fyrir að ríflega 200 starfsmenn spítalans verði í úrvinnslusóttkví þar til niðurstöður liggja fyrir og hluti þeirra í hefðbundinni sóttkví.
Í tilkynningu frá spítalanum segir að ekki sé gert ráð fyrir skerðingu á þjónustu við sjúklinga að svo stöddu, en unnið sé að endurskipulagningu þjónustuþátta til að tryggja samfellda og örugga þjónustu.
Eftirfarandi ákvarðanir taka gildi nú þegar.
- Algjör grímuskylda er á öllum starfsstöðvum Landspítala, nema þegar matast er og skal þá halda 2 metra fjarlægðarmörk. Inniliggjandi sjúklingar eru þó undanþegnir grímuskyldu.
- Alla fundi starfsfólks ber að halda með rafrænum hætti nema brýna nauðsyn beri til annars og gildir þá grímuskylda.
- Það starfsfólk sem getur sinnt störfum sínum að heiman skal gera það í samráði við sinn næsta yfirmann.
- Engin leyfi sjúklinga eru heimil.
- Aðeins einn gestur getur heimsótt hvern sjúkling á dag og allir gestir verða að bera grímu. Heimsóknartímar eru óbreyttir.
Á spítalanum eru nú ríflega 200 sjúklingar í eftirliti á Covid -19 göngudeild og 2 sjúklingar liggja á spítalanum vegna Covid -19 sýkingar.
Samtals greindust 38 ný smit af Covid -19 innanlands í gær og var 21 ekki í sóttkví. Í fyrradag greindust 75 og voru 37 þeirra ekki í sóttkví.