Fagfjárfestasjóðurinn ABMIIF, sem er í rekstri Stefnis hf. dótturfélags Arion banka er ábyrgðaraðili skuldabréfa útgefnum af Arion banka, sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.

Hagnaður varð af rekstri sjóðsins fyrstu sex mánuði ársins nam 595 milljónum króna, en hagnaðurinn er færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum. Í júnílok nam hrein eign sjóðsins 16.702 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.