Almannatengslafyrirtækið Góð samskipti hagnaðist um 6 milljónir króna á síðasta rekstrarári, samanborið við 15,4 milljónir króna árið áður.

Rekstrarhagnaður félagsins nam 8,3 milljónum og eignir námu rúmum 19,7 milljónum króna. Eigið fé félagsins var 6,4 milljónir  í árslok 2017.

Laun og launatengd gjöld námu 21,7 milljónum króna. Fyrirtækið er alfarið í eigu Andrésar Jónssonar. Arðgreiðslutillaga vegna rekstrarársins 2017 hljóðar upp á 10 milljónir króna.