Ísfugl hagnaðist um 45,8 milljónir króna á síðasta rekstrarári, samanborið við 10,7 milljónir króna árið áður. Rekstrartekjur félagsins námu 1,3 milljarði samanborið við 1,2 milljarða árið á undan. Rekstrarhagnaður nam 54 milljónum í fyrra.

Eignir námu rúmum 568  milljónum króna um síðustu áramót og eigið fé félagsins var 236 milljónir. Eiginfjárhlutfall var 41,5%. Ísfugl er að mestu leyti í eigu Reykjabúsins ehf. sem á 90% hlut í félaginu. Jón Magnús Jónsson er framkvæmdastjóri Ísfugls.