Íslandsbanki hefur hagnast um 10,1 ma. kr. á fyrstu þremur ársfjórðungum 2017. Samanborðið við árið áður lækkar hagnaður um 5,5 milljarða. Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir að munurinn skýrist aðallega af einskiptishagnaði af sölu Borgunar á hlutum í Visa Europe sem átti sér stað í fyrra. Arðsemi eigin fjár bankans var því 7,7% á tímabilinu samanborið við 10,3% á fyrstu þremur ársfjórðungum 2016.

Þegar hagnaður af reglulegri starfsemi er borinn saman á milli ára sést að hann lækkar úr 11,3 ma. kr. árið 2016 og í 10,2 ma. kr. árið 2017. Útlán til viðskiptavina jukust um 7,8% (53,5 ma. kr.) á 9M17 og voru 741 ma. kr. í lok tímabilsins. Ný útlán voru 152 ma. kr. sem dreifðust vel á milli viðskiptaeininga bankans.

Hreinar vaxtatekjur á þriðja ársfjórðungi voru 7,5 ma. kr. samanborið við 7,8 ma. kr og vaxtamunurinn var 2,8%. Hreinar þóknanatekjur á sama tíma voru 3,3 ma. kr. samanborið við 3,2 ma. kr. á sama tímabili í fyrra. Hagnaður frá júlí-september eftir skatta var 2,1 ma. kr. og dregst saman um 0,4 ma. kr. á milli ára. Arðsemi eigin fjár var 4,7% á tímabilinu samanborið við 5,1% á 3F16.

"Útlánavöxtur frá áramótum nemur 7,8% en sá vöxtur skýrist einkum af aukningu á lánum til fyrirtækja. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum fjárfestingum íslenskra fyrirtækja.  Góður gangur var í miðlun verðbréfa á þriðja ársfjórðungi og var bankinn með mestu hlutdeild á skuldabréfamarkaði. Jafnframt hefur hlutdeild bankans á hlutabréfamarkaði vaxið.

Hagnaður af rekstri bankans nam 10,1 milljarði á fyrstu 9 mánuðum ársins og nemur arðsemi af undirliggjandi rekstri 10,1%. Þetta er í samræmi við markmið bankans. Jákvæð virðisbreyting útlána hefur mikil áhrif á arðsemina og eru gæði lánasafnsins enn að batna.

Nýlega var lánshæfismat Íslandsbanka hækkað af S&P Global Ratings sem ýtir undir þá jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað í íslensku efnahagslífi. Kjör bankans á erlendum fjármagnsmörkuðum hafa farið batnandi síðustu misseri og  erum við nú  mun samkeppnishæfari í kjörum við erlenda banka. Við fögnum þessari þróun og hlökkum til áframhaldandi verkefna með viðskiptavinum okkar.

Flutningum í nýjar höfuðstöðvar bankans í Norðurturni er nú lokið og við sjáum strax  árangur aukinnar samvinnu og samþéttingar. Verkefnamiðuð vinnuaðstaða er að gefast vel og hafa þegar tugir íslenskra fyrirtækja heimsótt okkur til að kynna sér þessa framúrstefnulegu vinnuaðstöðu.

Framundan eru miklar breytingar á alþjóðlegum fjármálamarkaði þar sem innleiddar verða nýjar reglugerðir sem opna markaðinn enn frekar fyrir neytendur. Við erum á lokasprettinum að gera breytingar á grunnkerfum bankans sem gerir okkur enn betur kleift að takast á við spennandi áskoranir framundan," segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka í fréttatilkynningu. .