Hagnaður Kviku banka nam 1,75 milljörðum króna í fyrra og jókst um 10% milli ára. Arðsemi eiginfjár var 15,7% og mun stjórn bankans mun leggja til við aðalfund 443 milljóna króna arðgreiðslu sem samsvarar 25,3% af hagnaði ársins.

Hreinar þóknanatekjur jukust um 32% á milli ára og voru 3.698 milljónir króna en 85% af aukningunni komu til vegna eignastýringar. Hreinar vaxtatekjur voru 1.701 milljónir króna og jukust um 9% en fjárfestingatekjur lækkuðu lítillega og voru 521 milljón króna á árinu. Rekstrarkostnaður nam 4.009 milljónum króna á árinu 2018 og jókst um 9% á milli ára einkum vegna aukinna umsvifa eftir sameiningu við Virðingu og kaup á Öldu sjóðum á árinu 2017.

Heildareignir samstæðu Kviku í lok árs 2018 námu 88,3 milljörðum króna samanborið við 75,6 milljarða króna í árslok 2017. Útlán til viðskiptavina jukust um 4,1 milljarða króna á milli ára og voru 29,4 milljarðar króna í árslok. Lausafjárstaða bankans er mjög sterk en eignir bankans í handbæru fé og skuldabréfum með ríkisábyrgð námu 30,6 milljörðum króna í lok árs 2018 og er lausafjárþekja bankans (LCR) 277%, langt umfram 100% lágmarksþekju.

Innlán viðskiptavina jukust um 15% á milli ára og námu 47,9 milljörðum króna í árslok en voru 41,7 milljarðar króna í lok árs 2017. Bankinn gaf út víxla- og skuldabréf á árinu ásamt því að gefa út nýjan víkjandi 10 ára skuldabréfaflokk og nam heildarútgáfa bankans 8,7 milljörðum króna í lok árs. Eigið fé bankans er vel umfram kröfur eftirlitsaðila og var eiginfjárhlutfall í lok árs 25,1% en eiginfjárkrafa að viðbættum eiginfjáraukum er 20,25%.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir í tilkynningu að árið hafi gengið vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður á mörkuðum.  „Afkoma bankans var góð, fjármögnun bankans styrktist og vel gekk að halda rekstrarkostnaði á áætlun. Uppbygging bankans hefur gengið  í samræmi við áætlanir, vaxtatekjur hafa styrkst og veruleg aukning er í þóknanatekjum. Afkoma eignastýringar meira en tvöfaldaðist á milli ára, ekki síst vegna vel heppnaðra samruna við Virðingu og Öldu sjóði. Árið 2018 var fyrsta heila starfsárið eftir kaupin og munu þau hafa jákvæð áhrif á rekstur bankans til framtíðar,“ segir Ármann.

Þá felist mikil tækifæri í fyrirhuguðum kaupum á GAMMA, en beðið er samþykki Samkeppniseftirlitsins á kaupunum.