Hagnaður Landsvirkjunar á árinu 2018 nam 121 milljón Bandaríkjadala, eða sem nemur 14 milljörðum íslenskra króna. Er það aukning um 12% frá fyrra ári þegar hagnaðurinn var 108 milljónir dala. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði hækkaði hins vegar um 20% milli ára, úr 153,4 milljónum dala í184,1 milljón dala, eða 21,4 milljarða króna.

Rekstrartekjur Landsvirkjunar jukust um 50,8 milljónir dala á milli ára, úr 483,1 milljón í 533,9 milljónir dala, eða um 10,5%. Á sama tíma jókst rekstrar- og viðhaldskostnaður félagsins úr 137,5 milljónum dala í 144 milljónir, sem er aukning um 4,7%.

Handbært fé Landsvirkjunar frá rekstri nam 295,8 milljónum dala, eða 34,3 milljörðum sem er 6,4% hækkun frá árinu 2017. Nettó skuldir í árslok námu tæplega 1,9 milljörðum dala, eða 218,6 milljörðum íslenskra króna, sem er lækkun um 158 milljónir dala.

EBITDA félagsins nam 389,9 milljónum dala, eða 45,2 milljörðum króna, en EBITDA hlutfallið er 73,0% af tekjum, sem er eilítil hækkun frá 71,5% árið 2017.

Skuldsetning aldrei minni

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar segir árið 2018 hafa verið gott í rekstri félagsins og að tekjur þess hafi aldrei verið meiri. „[Þ]ar munaði mestu um aukið selt magn og hækkandi álverð,“ segir Hörður.

„Átjánda aflstöð Landsvirkjunar, Búrfellsstöð II, var tekin í gagnið á árinu, auk þess sem annar áfangi þeirrar sautjándu, á Þeistareykjum, hóf rekstur. Raforkusalan jókst um 430 gígavattstundir frá fyrra ári og var um 14,8 teravattstundir.

Áfram bættist við hóp viðskiptavina stórnotenda hjá fyrirtækinu á árinu. Gerðir voru rafmagnssamningar við tvo aðila í gagnaversiðnaði; Advania Data Centers og Etix Everywhere Iceland. Hópur viðskiptavina er nú fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr.

Eftir framkvæmdir síðustu ára, sem að mestu voru fjármagnaðar með sjóðstreymi, halda nettó skuldir nú áfram að lækka og lækkuðu þær á á síðasta ári um 158 milljónir Bandaríkjadollara. Hlutfall nettó skulda á móti EBITDA-rekstrarhagnaði er nú komið niður í 4,8 og hefur skuldsetning á þennan mælikvarða aldrei verið minni í sögu fyrirtækisins.

Nú hafa skapast skilyrði til að auka arðgreiðslur Landsvirkjunar í skrefum til eiganda síns, en síðastliðinn áratug hefur fyrirtækið fjárfest fyrir um einn milljarð dollara í nýjum orkumannvirkjum og á sama tíma greitt niður skuldir fyrir einn milljarð dollara.“