Tekjur Landsvirkjunar námu 28,6 milljörðum króna á fyrri hluta ársins og jukust um 16% samanborið við sama tímabil í fyrra. Hagnaðurinn var 5,8 milljarðar og jókst um 37,2%, samkvæmt nýútgefnum árshlutareikningi.

EBITDA nam 21 milljarði króna og var 73,4% af tekjum, samanborið við 72,2% áður. Skuldir lækkuðu um 5,3 milljarða í 211 milljarða.

Í tilkynningunni segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar: „Rekstur Landsvirkjunar heldur áfram að þróast með jákvæðum hætti en fyrri hluti ársins 2018 er tekjuhæsti árshelmingurinn í sögu fyrirtækisins, meðal annars vegna aukinnar orkusölu og hækkandi álverðs. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði á rekstur sem við lítum helst til, er rúmir 9 milljarðar króna á fyrri helmingi ársins og jókst um 15% frá sama tímabili árið áður. Þá lækkuðu nettó skuldir fyrirtækisins um 5 milljarða króna, eftir að tímabundið hafði hægt á lækkun skulda vegna umfangsmikilla framkvæmda.

Í lok júní var hornsteinslagning og gangsetning Búrfellsstöðvar II, átjándu aflstöðvar Landsvirkjunar, og verður hún tekin í fullan rekstur í ágúst 2018. Áður hafði Þeistareykjastöð hafið fullan rekstur í apríl.“