Hagnaður Lykils fjármögnunar, dótturfélags Klakka sem var nokkuð í umræðu á síðasta ári vegna bónusgreiðslna , jókst um næstum 52% árið 2017 miðað við fyrra ár, og nam hann tæplega 2,1 milljarði á árinu. Jukust heildareignir félagsins um 5,8 milljarða og námu þær í árslok um 31,8 milljörðum króna. Félagið hyggst greiða hluthöfum sínum, áðurnefndu félagi Klakki ehf. 940 milljónir króna í arð.
Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í byrjun mánaðarins var Klakka bannað að greiða bónusa, en áður hafði félagið talið sig hafa heimild til þess . Byggðust áætlaðar bónusgreiðslur á því hve vel gengi að selja Lykil sem nú er í söluferli , en heildargreiðslurnar hefðu getað numið um 550 milljónum ef besta árangrinum væri náð, sem myndi þýða um 60 milljónir á æðstu stjórnendur .
Tekjurnar jukust en rekstrarkostnaður lækkaði
Heildar tekjur Lykils fjármögnunar hf. á síðasta ári voru 2.616 milljónir króna, sem er um 9% hækkun frá fyrra ári. Hækkuðu vaxtatekjur á sama tíma og rekstrarkostnaður fyrirtækisins lækkaði á milli ára. Jafnframt var hrein virðisbreyting jákvæð.
Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu voru 1.319 milljónir króna sem er 8,5% lækkun frá árinu 2016, en um 2,2% hækkun ef tekið er tillit til einskiptisliða s.s. dráttarvaxta. Rekstrarkostnaður var 1.086 milljónir króna og lækkar um 4,1% frá fyrra ári. Ef tekið er tillit einskiptisliðar á árinu 2016 nemur lækkunin 9,5% á milli ára.
Hrein virðisbreyting var jákvæð um 604 milljónir króna sem er 17,2% lækkun frá fyrra ári. Hagnaður ársins var 2.067 milljónir króna sem er 51,9% hækkun milli ára, en þar af var tekjuskattsinneign að fjárhæð 991 milljónir króna tekjufærð á tímabilinu en áætlanir félagsins til næstu ára gera ráð fyrir að félagið geti nýtt inneignina á móti skattskyldum hagnaði.
Arðsemi eigin fjár var 16,4%. Heildareignir í lok tímabilsins voru 31.778 milljónir króna og jukust um 5.816 milljónir króna, eða 22,4%. Eigið fé í lok árs var 13.323 milljónir króna, en reiknað eiginfjárhlutfall (CAD) er 46,6%. Með hliðsjón af sterkri fjárhagsstöðu félagsins leggur stjórn til við hluthafafund að greiddur verði arður sem nemur 940 milljónum króna.
Lesa má eldri fréttir um félögin hér:
- 1. febrúar 2018 - Klakka bannað að borga bónusa
- 14. desember 2017 - Klakki fellur ekki undir lögin
- 14. desember 2017 - Skorti afl til að stöðva bónusgreiðslur
- 13. desember 2017 - Ragnar segist gjörsamlega misboðið
- 13. desember 2017 - Gætu fengið 60 milljónir á mann
- 12. desember 2017 - Lykill í söluferli
- 9. október 2017 - Lýsing breytir um nafn
- 20. ágúst 2017 - Hagnast um 3,4 milljarða