Hagnaður VSB verkfræðistofu var 8,7 milljónir króna á síðasta ári og dregst töluvert saman frá árinu 2017 þegar hann nam 32,8 milljónum króna. Rekstrartekjur félagsins drógust sömuleiðis saman milli ára en þær voru 477 milljónir króna í fyrra samanborið við 504 milljónir árið 2017. Rekstrargjöld jukust frá fyrra ári úr 463 milljónum króna árið 2017 upp í 467 milljónir króna á síðasta ári.

Eignir stofunnar drógust saman milli ára en þær voru 134 milljónir króna árið 2017 miðað við 129 milljónir króna á síðasta ári. Skuldir voru 83 milljónir króna miðað við 70 milljónir árið 2017. Eigið fé lækkaði úr 64 milljónum króna niður í 45 milljónir króna á síðasta ári