Í júní voru fluttar út vörur fyrir rúma 48,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 62,4 milljarða króna fob. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 14,0 milljarða króna. Í júní 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 10,1 milljarð króna á gengi hvors árs.

Á fyrri helmingi ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 274,9 milljarða króna en inn fyrir 338,1 milljarð króna fob. Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 63,2 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 4,2 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 59 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur

Á fyrri helmingi ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 57,9 milljörðum króna lægra, eða 17,4%, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 43,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,0% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 50,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 22,4% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur

Á fyrri helmingi ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 1,1 milljarði króna lægra, eða 0,3%, á gengi hvors árs, en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingarvörum og flutningatækjum.