Hagnaður Hampiðjunnar í fyrra nam 13,3 milljónum evra eða 1.780 milljónum króna, árið áður var hagnaður félagsins 9,1 milljón evra.

Rekstrartekjur félagsins á árinu var 24,4 milljónir evra en árið áður voru rekstrartekjur Hampiðjunnar 26,2 milljónir evra. Hlutfall eigin fjár félagsins nam 57% í lok ársins 2016. Stærstu hluthafar í Hampiðjunni er Vogun hf. með 38,64% hlutdeild. Kristján Loftsson er stjórnarmaður bæði í Hampiðjunni og Vogun.