Harpa Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands. Hlutverk fjármálastöðugleika er að greina áhættu í fjármálakerfinu og taka þátt í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið.

Fjármálastöðugleiki hefur einnig umsjón með starfsemi kerfisáhættunefndar og tekur þátt í víðtæku alþjóðlegu samstarfi varðandi regluverk og eftirlit með fjármálakerfinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands.

Harpa var áður aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs síðastliðin fimm ár. Þar áður var hún forstöðumaður rannsókna og viðbúnaðar hjá Seðlabankanum og vann við áhættustýringu hjá Sparisjóðabankanum og Glitni. Hún hefur auk þess setið sem varamaður í stjórn Fjármálaeftirlitsins frá árinu 2012.

Harpa er með BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands, og MS- og Ph.D-gráðu í verkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet.

„Hagvangur annaðist formlegt ráðningarferli en valnefnd lagði mat á umsækjendur og gerði tillögu um ráðninguna. Í valnefnd sátu Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Friðrik Már Baldursson prófessor í hagfræði í Háskólanum Reykjavík, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Unnur Gunnarsdóttir forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Með hliðsjón af reynslu Hörpu af rannsóknum, stefnumótun og stjórnun og þekkingu á fjármálakerfinu var valnefndin einhuga í þeirri afstöðu sinni að mæla með henni og seðlabankastjóri hefur því ákveðið að ráða Hörpu í starfið,“ segir í tilkynningunni.

Eins og áður hefur komið fram þá sóttu tólf um stöðu framkvæmdastjóra Fjármálastöðugleika.