Rekstrarhorfur fyrir botnfiskvinnslu hafa ekki verið lakari í áratug og mun HB Grandi því draga verulega úr eða hætta kaupum botnsfisks á fiskimarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu HB Granda til Kauphallarinnar.

Að sögn HB Granda voru unnin 28 þúsund tonn af þorski, ufsa og karfa í fiskvinnslum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi, árið 2016. Þar af voru keypt 4 þúsund tonn af ufsa og þorski af öðrum útgerðum og á fiskmarkaði.

Kemur fram í tilkynningunni að útlit sé fyrir tap af landvinnslu botnfisks og að félagið sé að bregðast við þeirri þróun.