Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,12% í dag. Heildvarvelti á mörkuðum nam ríflega 9 milljarða króna viðskiptum. Velta á hlutabréfamarkaði nam 1,4 milljörðum og á skuldabréfamarkaði nam velta 7,6 milljörðum króna.

Gengi hlutabréfa HB Granda hækkaði mest í dag eða um 2,85% í 69,7 milljón króna viðskiptum. Næst mest hækkaði gengi hlutabréfa Icelandair Group eða um 1,66% í 152,8 milljón króna viðskiptum.

Aftur á móti lækkaði hlutabréfaverð N1 um 1,35% í 189,8 milljón króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa Símans um 1,04% í 183 milljón króna viðskiptum.