Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,21% í dag og stendur nú í 1.783,4 stigum. Frá áramótum hefur hún hækkað um 4,25%. Heildarvelta á mörkuðum nam 2,1 milljarði, þar af var veltan á hlutabréfamarkaði 554 milljónir, og 1,56 milljarðar á skuldabréfamarkaði.

Gengi hlutabréfa HB Granda lækkuðu um 1,69% í dag í 111,9 milljón króna viðskiptum. Aftur á móti hækkaði gengi bréfa Haga um tæplega eitt prósentustig í dag í ríflega 55 miljón króna viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 1,8 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 0,5 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA stóð í stað í dag í 0,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,1 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,4 milljarða viðskiptum.  Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði lítillega í dag í 0,8 milljarða viðskiptum.