Í dag, mánudaginn 26. júní, hófust framkvæmdir við nýja stúdentagarða Félagsstofnunar stúdenta (FS) þegar tekin var fyrsta skóflustunga að görðunum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Garðarnir verða staðsettir á lóð Vísindagarða Háskóla Íslands við Sæmundargötu. Þar munu rísa um 14.700 fermetra hús á fimm hæðum, með um 220 leigueiningum, herbergjum með sér baðherbergi og sameiginlegri aðstöðu, einstaklingsíbúðum og paríbúðum. Stefnt er að því að framkvæmdum verði lokið í lok árs 2019.

Að jafnaði eru um eitt þúsund manns á biðlista eftir dvöl á görðum og þrátt fyrir töluverða uppbyggingu hafa biðlistar lengst síðustu ár. Leigueiningar á stúdentagörðum eru í dag um 1.200 og hýsa um tvö þúsund manns manns, þ.e. stúdenta við Háskóla Íslands og fjölskyldur þeirra.

Stefna FS er að halda uppbyggingu Stúdentagarða áfram þar til allir stúdentar sem kjósa að búa á görðum eigi þess kost. Markmið FS er að byggja um 600 leigueiningar á næstu fimm árum. Nýju stúdentagarðarnir verða fjármagnaðir að 90% hluta með lánum frá Íbúðalánasjóði en það sem á vantar leggur FS til.