Í dag var tekin skóflustunga að nýju þjóðarsjúkrahúsi við Hringbraut. Ráðherrar ásamt fulltrúum félaga, hagsmunasamtaka og stofnana tóku fyrstu skóflustungu nýs meðferðarkjarna. Viðstaddir skóflustunguna voru einnig fyrrverandi heilbrigðisráðherrar auk fjölmargra annarra gesta. Áætlað er að meðferðarkjarninn verði tekinn í notkun árið 2024.

Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu og gegnir lykilhlutverki í starfseminni. Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss. Meðferðarkjarninn tengist öðrum starfseiningum Landspítala með tengigöngum og tengibrúm. Meðferðarkjarninn verður á sex hæðum auk tveggja hæða kjallara.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar vera eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar. „Dagurinn í dag markar tímamót í heildaruppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut,“ segir Svandís.

„Nýtt sjúkrahús mun gerbylta allri aðstöðu fyrir heilbrigðisþjónustuna í heild sinni, ekki síst fyrir sjúklinga, starfsmenn og aðstandendur.“

Reis fyrst fyrir tilstilli íslenskra kvenna

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala segir að honum sé efst í huga þakklæti til þeirra sem barist hafa fyrir verkefninu í áratugi og sem fylgja því nú úr hlaði. „Þetta eru stærstu tímamót í sögu Landspítala frá því að Landspítali reis fyrst hér við Hringbraut fyrir tilstilli íslenskra kvenna,“ segir Páll.

„Uppbygging Landspítalaþorpsins flýgur áfram, enda nýtur verkefnið mikilvægs stuðnings stjórnvalda og Landspítali velvilja þjóðarinnar allrar. Til hamingju við öll.“

Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH segir: „Við sem stöndum að Hringbrautarverkefninu erum stolt á þessum degi nú þegar þegar jarðvinna vegna byggingar meðferðarkjarna hefst. Áætlanir okkar eru þær að byggingu spítalans verði lokið 2024 í samræmi við fjármálaáætlun Alþingis 2019-2023.“

Aðalhönnuður meðferðarkjarnans er Corpus3 hópurinn en Spital-hópurinn sér um gatna-, veitna- og lóðahönnun.

Nýr Landspítali
Nýr Landspítali