Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur og varaformaður Samfylkingarinnar hefur svarað fyrir yfirlýsingu minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur og formanns VR . Hún hafnar yfirlýsingu þeirra og bendir máli sínu til stuðnings á umsögn fjármálastjóra Reykjavíkurborgar frá 16. júlí 2018.

Facebook-yfirlýsingu Heiðu ásamt tengil á umsögn fjármálastjóra Reykjavíkurborgar má finna hér og að neðan.

Í tilefni af yfirlýsingu minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur er rétt að fram komi, eins og skýrt kom einnig fram í Vikulokunum í morgun:

1. Reykjavíkurborg hefur úthlutað lóðum og greitt stofnframlög með yfir 1000 íbúðum óhagðaradrifinna húsnæðisfélaga. Meðal annars til Bjargs, byggingarfélags launafólks. Að halda öðru fram stangast á við staðreyndir eins og sjá má í meðfylgjandi umsögn fjármálastjóra Reykjavíkurborgar og á meðfylgjandi mynd.

2. Það er beinlínis rangt að byggingarréttargjald standi í vegi fyrir byggingu félagslegs húsnæðis eins og fram kemur einnig í meðfylgjandi umsögn frjármálastjóra Reykjavíkur. Staðreyndin er sú að ekkert sveitarfélag í landinu stendur eins myndarlega að uppbyggingu félagslegs húsnæðis og húsnæðis í samvinnu við verkalýðshreyfinguna og husnæðisfelög sem ekki eru rekin i hagnðarskyni, og Reykjavík gerir. Ef önnur sveitarfélög á höfuðborgasvæðinu kæmu að þessu málum með jafn öflugum hætti og Reykjavík væri hér enginn húsnæðisvandi.

Ávirðingum minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur er því vísað til föðurhúsanna í einu og öllu.

https://fundur.reykjavik.is/.../umsogn_byggingarrettargjald.p...