Verð á hlutabréfum í Heimavöllum lækkaði um 4% í 185 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Icelandair lækkaði næstmest eða um 3,3% í 89 milljóna króna viðskiptum.

Aðeins fjögur félög hækkuðu í viðskiptum dagsins þar af hækkaði Sjóvá mest eða um 1,33% í 313 milljóna króna viðskiptum. VÍS hækkaði næst mest eða um 0,61% í 146 milljóna króna viðskiptum.

Heildarvelta á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta í dag nam 2,5 milljörðum og lækkaði hlutabréfavísitalan um 0,66% í dag.