Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að aðhafast ekkert vegna kaupa fyrirtækisins Límtré Vírnet ehf á öllu hlutafé félagsins Bindir & Stál ehf., því að samruninn hindri ekki virka samkeppni né leiði til myndunar eða styrkingar á markaðsráðandi stöðu.

„Límtré Vírnet er framleiðslu- og iðnfyrirtæki sem starfar á nokkrum undirmörkuðum alhliða byggingavörumarkaðar," segir í frétt eftirlitsins.

„Fyrirtækið stundar aðallega starfsemi á sviði utanhússklæðninga, innveggjastoða, hönnunar og framleiðslu á burðarvirki í límtré og steinullareiningum ásamt rekstri þjónustudeilda og innflutningi á stálgrindarburðarvirki og fleiri íhlutum í byggingarlausnum fyrir verktaka, endursöluaðila og einstaklinga.

Bindir og Stál stundar aðallega starfsemi á sviði þjónustu við þann hluta byggingariðnaðarins sem snýr að burðarvirki í uppsteypu og tengdum hlutum, niðurklippingu og beygingu á kambstáli og sölu á ýmis konar tækjum og búnaði til járnavinnslu á byggingastöðum, ásamt viðgerðarþjónustu við þau tæki.“